X X

Klara garn og uppskrift

SKU
Klara knitting kit
Uppskrift fyrir:
Vana

Klara er undurmjúk og létt peysa úr Mohair mix garninu frá Iceweargarn. Peysan er með munsturbekk, röndum og gatamunstri svo það er skemmtileg tilbreyting í prjónaskapnum.

 

STÆRÐIR XS/S, M/L, XL/XXL


Yfirvídd 104 cm 122 cm 140 cm
Bolsídd að handvegi 41 cm 43 cm 44 cm
Bolsídd upp á öxl 58 cm 61 cm 63 cm
Ermasídd 45 cm 47 cm 49 cm

 

EFNI
Mohair Mix frá Icewear, 38% mohair, 22% ull, 27% acryl, 13% nylon
Litur A (ljós brúnn) 150 g, 200 g, 200 g
Litur M (mosagrænn) 50 g, 50 g, 50 g
Litur R (rauðbrúnn) 50 g, 50 g, 50 g

 

PRJÓNAR
Hringprjónar nr 2 og 3, 80-100 cm
Sokkaprjónar nr 2 og 3

 

PRJÓNFESTA
10 x 10 cm = 22 L og 32 umferðir í sléttprjóni á prjóna nr 3.
Nauðsynlegt er að hafa rétta prjónfestu til þess að flíkin nái uppgefinni stærð.
Sannreynið prjónfestu og skiptið um stærð prjóna ef þörf er á.

 

AÐFERÐ
Peysan er prjónuð neðan frá, fyrst í hring en síðan skipt upp í fram- og bakstykki við handveg.
Hálsmál er kringt og axlir eru prjónaðar hvor fyrir sig.
Ermar eru prjónaðar í hring, frá handvegi og niður.
Stroff neðan á bol og ermum ásamt hálslíningu er prjónað með brugðningum; 1S og 1B til skiptis.
Peysan er prjónuð með sléttprjónuðum í röndum, gataprjónuðum bekkjum og tvíbandabekk eftir munsturteikningum.

 

ERFIÐLEIKASTIG
Vanir prjónarar ++

Skoða alla lýsingu Skoða stutta lýsingu

Velja stærð

Smelltu á mynd til að hanna eigin litasamsetningu

Velja lit
Out of Stock
Out of Stock
Out of Stock
Smella á “breyta” til að skipta um lit á garni
-
+

Verð

Breyta
-
+

Verð

Breyta
-
+

Verð

Breyta
Klara uppskrift   + 700 kr

10.600 kr

Viðskiptavinir sem keyptu Klara garn og uppskrift keyptu einnig