GOLLA opin peysa í yfirvídd
AÐFERÐ
GOLLA er létt og hlý peysa, prjónuð ofan frá og niður og fram og til baka. Peysan er prjónuð úr þremur þráðum á prjóna nr. 8 og er alveg einstaklega mjúk og þægileg flík yfir sumarkjólinn, við gallabuxurnar eða við náttbuxurnar heima fyrir.
Peysan er hönnuð sem mittispeysa með víðum ermum en það er lítið mál að síkka hana eftir þörfum hvers og eins.
ERFIÐLEIKASTIG: 3.
STÆRÐIR
|
XS
|
S
|
M
|
L
|
XL
|
Yfirvídd bolur
|
109.5 cm
|
116 cm
|
123 cm
|
129.5 cm
|
139.5 cm
|
Yfirvídd ermar
|
45 cm
|
48.5 cm
|
50 cm
|
53.5 cm
|
56.5 cm
|
Lengd á bol, frá handvegi
|
15 cm
|
16 cm
|
17 cm
|
19 cm
|
21 cm
|
Ermalengd, frá handvegi
|
47 cm
|
48 cm
|
49 cm
|
50 cm
|
51 cm
|
Garnmagn
|
XS
|
S
|
M
|
L
|
XL
|
Nordic Mini (#9055)
|
200 g
|
200 g
|
250 g
|
250 g
|
300 g
|
Mohair Mix (#4018)
|
100 g
|
100 g
|
125 g
|
125 g
|
150 g
|
Mohair Silk (#1005)
|
75 g
|
75 g
|
100 g
|
100 g
|
125 g
|
Einnig hægt að nota:
-1 þráð af Coral Nature & 1 þráð af Mohair Mix.
-1 þráð af Saga Wool & 1 þráð af Mohair Mix.
-1 þráð af Bambbo Wool & 2 þræði af Mohair Silk.
PRJÓNFESTA
10X10 cm = 12 lykkjur og 17 umferðir í sléttu prjóni á prjóna nr. 8.
Nauðsynlegt er að hafa rétta prjónfestu til þess að flíkin nái uppgefinni stærð. Sannreynið prjónfestu og skiptið um stærð prjóna ef þörf er á.
PRJÓNAR
Hringprjónar nr. 8 (40 og 120 cm)
Hringprjónn nr. 7 (120 cm)
Sokkaprjónar nr. 7 og 8