Peysan er innblásin af fjöllunum í norðanverðum Önundarfirði. Nafnið, Hafið eða fjöllin, er að sjálfsögðu vísun í samnefnt einkennislag Önundarfjarðar. Þessi ullarútgáfa á mjög líka systur, silkiútgáfuna.
Garn
Icewear garn, Saga wool (50g/100m) og Mohair Mix (25g/161m), haldið saman.
Hér er sýnt SW (grunnlitur) 1134 og MM (fylgiþr.) 1000, 5003 og 5094
Magn
Saga Wool: 310, 340, 370 (400, 430) 450, 490, 520 g
Mohair Mix (allir litir samtals): 95, 105, 115 (125, 135) 145, 155, 165 g
Prjónar 5 mm í meginfleti og 4,5 mm í stroff. Hringprjónar.
Prjónfesta
10x10 cm = 14 lykkjur í sléttu einlitu prjóni á prjóna nr 5.
Stærðir 1, 2, 3 (4, 5) 6, 7, 8
Mál (cm) Stærð 1 2 3 4 5 6 7 8
Yfirvídd/brjóst 86 94 102 110 118 126 134 142
Berustykki (að framan) 24 25 26 27 28 29 30 31
Ummál ermar 29 30 34 35 39 40 44 46
Sídd frá handvegi 42 42 43 43 44 44 45 45
Ermi frá handvegi 48 49 50 51 52 53 54 55
Aðferð
Peysan er prjónuð ofanfrá og skipt í ermar og bol að loknu berustykki. Fjallamynstrið er úr eistnesku Vikkel prjóni, tveggja lykkja köðlum. Litbrigði eru gerð með mislitum fylgiþræði. Á myndinni eru sýndir 3 litir en mega vera fleiri/færri v