Hér er komin DK útgáfa af Míþríl peysunni sem upphaflega var gerð úr Mohair Silk.
Peysan er prjónuð með sléttu prjóni og köflum af mynsturprjóni á brjósti og ermum. Hægt er að klæðast henni bæði á réttu og röngu, mynstrið sést betur á röngunni. Á henni eru laskaermar og faldurinn á bolnum er aðeins síðari að aftan vegna rykkingar af völdum mynstursins að framan.
Garn
Bamboo Wool frá Icewer Garn (100m/50g) #9059, Autumn Leaf.
Magn
260, 290, (320, 250, 280) 420, 250 g
Prjónfesta
10 x 10 cm = 16 L og 22 umferðir í sléttu prjóni í hring.
Prjónar
Hringprjónar nr 5 eða í þeirri stærð sem gefur rétta prjónfestu.
Aukahlutir
4 prjónamerki, stoppnál.
Stærðir: 1 2 3 4 5 6 7
Yfirvídd: 83 - 93 - 103 - 123 - 133 - 133 - 143 cm
Laski, mælt að aftan: 13 - 15 - 17 - 19 - 21 - 23 - 25 cm
Ermavíddr: 31 - 36 - 41 - 46 - 51 - 56 - 61 cm
Sídd frá handvegi, aftan (tillaga): 28 -28 - 28 - 28 - 28 - 28 - 28 cm
Ermasídd (tillaga): 35 - 35 - 36 - 36 - 37 - 37 - 38 cm
Aðferð
Peysan er prjónuð ofan frá með laska-útaukningum sem eru útfærðar þannig að göt myndist sem setja svip á flíkina. Ermar eru prjónaðar beinar þar til þær þrengjast fremur skarplega fremst við líninguna. Hálsmálið er vítt.