Falleg og klassísk rúllukragapeysa með kaðlamunstri á framstykki.
STÆRÐIR
XS S M L XL XXL
Yfirvídd: 86 cm 90 cm 98 cm 106 cm 116 cm 126 cm
Ermasídd að handvegi: 39 cm 40 cm 41 cm 43 cm 44 cm 45 cm
Bolsídd að handvegi: 28 cm 29 cm 30 cm 31 cm 32 cm 33 cm
Bolsídd að hálsmáli: 48 cm 50 cm 52 cm 54 cm 56 cm 58 cm
Hæð rúllukraga, niðurbrotinn: Um 10 cm
EFNI
Alpaca Wool frá Icewear, 65% alpakkaull, 35% ull
MAGN
500 g 550 g 600 g 650 g 750 g 850 g
PRJÓNAR
Hringprjónar nr 3½ og 4½, 40 og 80 cm langir
Sokkaprjónar nr 3½ og 4½ Kaðlaprjónn
PRJÓNFESTA
10 x 10 cm í sléttprjóni: 19 lykkjur og 30 umferðir á prjóna nr 4½.
10 x 10 cm í kaðlamunstri: 30 lykkjur og 30 umferðir á prjóna nr 4½.
AÐFERÐ
Peysan er prjónuð í hring, frá hálsmáli og niður.
Framstykki er prjónað með kaðlamunstri.
Bak og ermar eru með sléttprjóni.
Aftan á kraga eru prjónaðar nokkrar mislangar umferðir til að lækka hálsmálslínu að framan.