Þorgrímur er endurgerð af peysu sem var vinsæl hjá Icewear á níunda áratugnum, munstrið er óbreytt þó það smellpassi inn í peysutískuna í dag.
Peysan er öll munsturprjónuð með sléttum og brugðnum lykkjum. Bolur og ermar upp að eru prjónaðar í hring. Axlastykki og upphækkun á ermum er prjónuð fram og til baka.
Ermar eru saumaðar í. Uppskriftin er í meðallagi krefjandi og hentar því fyrir vana prjónara.
STÆRÐIR S M L XL XXL
Yfirvídd 98 cm 104 cm 110 cm 116 cm 122 cm
Sídd á bol að öxl 69 cm 71 cm 73 cm 75 cm 77 cm
Ermasídd að handvegi 50 cm 51 cm 52 cm 53 cm 52 cm
EFNI
Bamboo Wool frá Icewear, 50% merinóull, 50% bambus. Einnig má nota Nordic frá Icewear, 100% merinóull eða Super frá Icewear, 100% ull.
Magn: 700 g 750 g 800 g 850 g 900 g
PRJÓNFESTA
10 x 10 cm = 21 lykkja og 33 umferðir með munsturprjóni, á prjóna nr 4½.
AÐFERÐIR
Peysan er öll munsturprjónuð með sléttum og brugðnum lykkjum. Bolur og ermar upp að handvegi, eru prjónaðar í hring. Axlastykki og upphækkun á ermum er prjónuð fram og til baka.