Hlýjir, mjúkir og fljótprjónaðir vettlingar sem henta við öll tækifæri.
STÆRÐIR
6-8 ára (8-10 ára) 10-12 ára
Yfirvídd: 16 cm (18 cm) 19 cm
Lengd belgs: 12.5 cm (14 cm) 16,5 cm
Garn
Super frá Icewear garn, 100% merino ull (100m/50g).
Litir og magn
Litur 1: #9012-0001, 1 dokka (1 dokka) 1 dokka
Litur 2: #9012-2026, 1 dokka (1 dokka) 1 dokka
Litur 3: #9012-1000, 1 dokka (1 dokka) 1 dokka. Einnig er hægt að nota afgangs garn í réttum lit.
Litur 4: #9012-9055, 1 dokka (1 dokka) 1 dokka. Einnig er hægt að nota afgangs garn í réttum lit.
Prjónastærð
Sokkaprjónar nr. 4 og 4.5.
Prjónfesta
10 cm = 22 L í einlitu prjóni á prjóna nr 4.5
Aðferðir
Byrjað er á stroffi sem prjónað er; 2 L sl með rauðu, 1 L br með svörtu, til skiptis.
Í upphafi belgs er aukið út um 1 L í hverri svartri rönd. Í framhaldi af því verður munstrið; 2 L sl með rauðu, 2 L sl með svörtu, til skiptis.
Þumlar er einlitir svartir.