Efni: Saga Wool frá Icewear Garn - 50 gr dokkur
Litur A 1000 XS(6), S(6), M(7), L(8), XL(9), XXL(11)
Litur B 9059 XS(2), S(2), M(2), L(2), XL(2), XXL(2)
Prjónar
Hringprjónar nr. 4mm og 5mm, 40 og 60/80 cm eftir stærð
Sokkaprjónar nr. 4mm og 5mm
Prjónafesta
10x10 cm = 18 lykkjur og 26 umferðir á prjóna 5mm.
ATH: Uppskriftin er prjónuð frekar fast svo þið gætuð þurft að nota prjóna númer 4mm eða 4,5mm, ekki er mælt með að sleppa prjóna festunni.
Stærð í cm (XS-XXL)
Yfirvídd á bol (78) 84 (93) 104 (112) 122
Lengd á bol að handvegi (32) 34 (36) 38 (40) 42
Lend á ermum að handvegi (44) 46 (47) 48 (49) 50
Yfirvídd efst á ermum (31,5) 33 (34) 36,5 (39) 41
Aðferð
Peysan er prjónuð frá bol og að hálsmáli. Bolur og ermar eru prjónuð í hring. Þegar ermar og bolur eru tilbúin eru ermar sameinaðar við bol og axlastykki prjónað. Fylgið teikningu fyrir úrtöku, athugið að fylgjast með athugasemdum þar sem umferðir eru mismargar eftir stærðum. Munstur byrjar á samskeitum vinstri ermar og bols.