Hönnun: Kristín Örnólfsdóttir
Hugmyndin af þessum vettlingum kom þegar Kristín rakst á myndir af styttuböndum í bókinnni Hundrað ár í Þjóðminjasafni. Styttubönd voru spjaldofin bönd með ”margbrotnum fagurlega litum munstrum, skúfar á endum”. Þau voru um það bil 1.5 til 2 metrar á lengd og 3 cm á breidd. Konur notuðu þau til að stytta skósíð pils þegar á þurfti og voru pilsin þá dregin upp í mittið og svo var hnýtt utan um þau með styttubandinu skrautlega.
Kvenmanns stærð: M, L. Karlmanns stærð: S/M. Efni og áhöld: Artic frá Icewear garn.
Ein dokka er 50g (175m/191yd).
Prjónar: Fimm prjónar nr. 2.5 fyrir kvenmanns stærð M. Fimm prjónar nr. 2.5 og fimm prjónar nr. 2.75 fyrir kvenmanns stærð L. Fimm prjónar nr. 2.75 og fimm prjónar nr. 3 fyrir karlmanns stærð S/M. Prjónfesta er 19 lykkjur og 18 umferðir/ 5 cm í munsturprjóni á prjóna nr. 2.5.