Bleika slaufan sokkar uppskrift
Bleika slaufan - sokkar eru hannaðir með gott málefni í huga.
Allur ágóði af sölunni í október rennur til Krabbameinsfélags íslands. Einnig mun Icewear Garn gefa sömu upphæð á móti.
Stærðir 1 2 2
Skóstærð 36-38 38-40 40-42
Ummál 19 cm 21 cm 22 cm
EFNI
Artic frá Icewear Garn, 80% ull og 20% nylon. 50 g (175 m/ 191 yd)
Litur 1: 9004-8001
Magn: 50-50-100 g
Litur 2: 9004-8050
Magn: 50-50-50 g
Litur 3: 9004-4003
Magn: 50-50-50 g
PRJÓNFESTA
10X10 cm = 27 L og 40 umferðir í einlitu prjóni á prjóna nr. 3.
PRJÓNAR
Sokkaprjónar nr. 3
AÐFERÐIR
Byrjað er á því að prjóna stroff; 2 L sl, 2 L br. Á eftir stroffi kemur tvíbanda munsturprjón. Þegar munsturprjóni er lokið er leggurinn einlitur að hæl. Hælstallur er prjónaður með garðaprjóni og í öðrum lit. Sokkurinn er einlitur fram að úrtöku á tá, hún er prjónuð með sama lit og hællinn.
Size Guide