Peysan er innblásin af fjöllunum í norðanverðum Önundarfirði, Nafnið, Hafið eða fjöllin, er að sjálfsögðu vísun í samnefnt einkennislag Önundarfjarðar. Þessi silkiútgáfa á mjög líka systur, ullarútgáfuna.
Garn
Icewear garn, Alpaca Silk (50g/200m) og Mohair Silk (25g/250m), haldið saman.
Á myndinni er sýnt AS (grunnlitur) 1000 og MS (fylgiþráður) 8001, 2008 og 9065
Magn
Alpaca Silk: 165, 180, 195 (210, 225) 240, 255, 270 g
Mohair Silk (allir litir samtals): 70, 75, 80 (85, 90) 100, 105, 110 g
Prjónar 4 mm í meginfleti og 3,5 mm í stroff. Hringprjónar.
Prjónfesta
10x10 cm = 20 lykkjur í sléttu einlitu prjóni á prjóna nr 5.
Stærðir 1, 2, 3 (4, 5) 6, 7, 8
Mál (cm) Stærð 1 2 3 4 5 6 7 8
Yfirvídd/brjóst 86 94 102 110 118 126 134 142
Berustykki (að framan) 21 22 23 24 25 26 27 28
Ummál ermar 27 31 33 37 39 41 43 45
Sídd frá handvegi 33 33 34 34 35 35 36 36
Ermi frá handvegi 44 44 45 45 46 46 47 47
Aðferð
Peysan er prjónuð ofanfrá og skipt í ermar og bol að loknu berustykki. Fjallamynstrið er úr eistnesku Vikkel prjóni, tveggja lykkja köðlum. Litbrigði eru gerð með mislitum fylgiþræði. Á myndinni eru sýndir 3 litir en mega vera fleiri/færri.