STÆRÐIR XS S M L XL XXL
Yfirvídd 110 115 120 125 130 135 cm
Lengd á bol frá handvegi 50 51 52 53 54 55 cm
Ermalengd frá handvegi 40 41 42 43 44 45 cm
EFNI
Saga Wool frá Icewear Garn, 100% ull. 50g (100m/109 yd).
MAGN
Aðallitur A #9001-1151, 500 550 600 650 700 750 g
Munsturlitur B #9001-1000, 100 100 100 150 150 150 g
PRJÓNAR
Hringprjónar nr. 4.5 og 5 (40 og 80 cm langir)
Sokkaprjónar nr. 4.5 og 5.
PRJÓNFESTA
10X10 cm = 18 lykkjur og 24 umferðir í sléttu prjóni á prjóna nr. 5.
AÐFERÐIR
Peysan er prjónuð í hring, með sléttu prjóni og tvíbanda prjóni.
Bolur og ermar eru einlit upp að handvegi.
Berustykkið er prjónað með tvíbanda munsturbekk.
Brugðning neðan á bol, á ermum, í hálsmáli og á hnappagata - og tölulistum er prjónuð með perluprjóni.
Uppskriftinni fylgja leiðbeiningar til að prjóna peysuna á tvo vegu; önnur leiðin er að byrja neðst og prjóna upp en hin leiðin er að byrja uppi og prjóna niður.