Erna er prjónuð í klassísku lopapeysusniði með einfalt og fallegt laufamunstur á berustykki.
STÆRÐIR XS S M L XL
Yfirvídd 92 cm 96 cm 101 cm 106 cm 111 cm
Sídd á bol 31 cm 33 cm 34 cm 35 cm 36 cm
Ermalengd 44 cm 46 cm 48 cm 49 cm 50 cm
Saga Wool frá Icewear, 100% ull, 50 g (100 m/ 109 yd)
Grá peysa:
Litur A: 9001-1151
Magn: 250-300-350-400-450g
Litur B: 9001-4119/01
Magn: 50-50-100-100-100g
Litur C: 9001-1000
Magn: 50-50-100-100-100g
Bleik peysa:
Litur A: 9001-8150
Magn: 250-300-350-400-450g
Litur B: 9001-8101
Magn: 50-50-100-100-100g
Litur C: 9001-2132
Magn: 50-50-100-100-100g
Rauð peysa:
Litur A: 9001-2131
Magn: 250-300-350-400-450g
Litur B: 9001-5128
Magn: 50-50-100-100-100g
Litur C: 9001-1000
Magn: 50-50-100-100-100g
PRJÓNFESTA
10X10 cm = 17 lykkjur og 23 umferðir í munsturprjóni á prjóna nr. 5.
Nauðsynlegt er að hafa rétta prjónfestu til þess að flíkin nái uppgefinni stærð. Sannreynið prjónfestu og skiptið um stærð prjóna ef þörf er á.
PRJÓNAR
Hringprjónar nr 4.5 og 5, 40 og 60 – 80 cm langir
Sokkaprjónar nr. 4.5 og 5
AÐFERÐIR
Peysan er prjónuð í hring, með sléttu prjóni og tvíbanda prjóni.
Styttar umferðir eru notaðar fyrir upphækkun á baki.
Stroff neðan á bol og ermum ásamt hálslíningu er prjónað; 2 L sl, 2 L br til skiptis.
Uppskriftinni fylgja leiðbeiningar til að prjóna peysuna á tvo vegu; önnur leiðin er hin klassíska leið að byrja niðri og prjóna upp en hin leiðin er að byrja uppi og prjóna niður.
ERFIÐLEIKASTIG ++
Uppskriftin er ekki mjög krefjandi og hentar því flestum prjónurum. ++