Þessi fallega peysa kemur í stærðum allt frá leikskólaaldri og upp í unglingsaldur. Peysan heitir eftir hönnuði munstursins, Heiðu Sveinsdóttur.
STÆRÐIR 3-4 ára 5-6 ára 7-8 ára 9-10 ára 11-12 ára 13-14 ára
Yfirvídd 73.5 cm 75.5 cm 80 cm 6.58 cm 95.5 cm 100 cm
Bolsídd að handvegi 25 cm 29 cm 33 cm 36 cm 41 cm 44 cm
Ermasídd að handvegi 26 cm 30 cm 34 cm 38 cm 42 cm 45 cm
EFNI
Saga Wool frá Icewear, 100% ull
Magn:
Aðallitur A (9063r): 150-250-300-300-350-350
Aukalitur 1 (9115): 50-50-50-50-50-50 g
Aukalitur 2 (1000): 50-100-100-100-100-100
Aukalitur 3 (4119): 50-50-50-50-50-50 g
PRJÓNAR
Hringprjónar nr 4.5 og 5, 60-80 cm
Sokkaprjónar nr 4.5 og 5
PRJÓNFESTA
10 x 10 cm = 18 lykkjur og 24 umferðir með sléttprjóni, á prjóna nr 5.
AÐFERÐIR
Peysan er prjónuð í hring með sléttprjóni. Berustykki er prjónað með tvíbandaprjóni og úrtökum upp að/frá hálsmáli. Stroff neðan á bol og ermum, ásamt hálslíningu eru prjónuð með brugðningum; 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðin til skiptis.
Hægt er að velja um að prjóna peysuna á tvo vegu: Neðan frá og upp eða ofan frá og niður.
ERFIÐLEIKASTIG
Tveir punktar - vanir prjónarar