Alma er gamaldags og klassísk peysa og húfa fyrir 6-9 mánaða og 18-24 mánaða
Uppskriftin birtist áður í prjónablaðinu Lopa og bandi. Hönnun: Margrét Linda Gunnlaugsdóttir.
STÆRÐIR 6-9 mán 18-24 mán
Yfirvídd 61 cm 69 cm
Sídd 31 cm 37 cm
Ermalengd 18 cm 21 cm
Lengd sokka (hæll að framlesti) 13 cm 15 cm
Ummál húfu við andlit (að snúru) 32 cm 36 cm
EFNI
Alpaca Silk frá Icewear, 70% alpakkaull, 30% silki
Nordic Mini frá Icewear, 100% merinóull
2 þræðir er notaðir saman: 1 þráður af Alpaca Silk og 1 af Nordic Mini.
Magn:
Alpaca Silk: 150-200 g
Nordic Mini: 100-150 g
Tölur: 7-8 stk
PRJÓNAR
Hringprjónar nr 3½ og 4, 60 cm langir
Sokkaprjónar nr 3½ og 4
PRJÓNFESTA
10 x 10 cm = 21 L og 30 umferðir munsturprjón á prjóna nr 4.
AÐFERÐIR
2 þræðir er notaðir saman í flíkurnar: 1 þráður af Nordic Mini og 1 af Alpaca Silk.
Peysan er prjónuð fram og til baka í munsturprjóni. Ermar eru prjónaðar frá handvegi og niður