Innblástur munstursins kemur frá perlukraganum á vestur grænlenska þjóðbúningnum “Nuilarmiut”.
Reynt var að gera munstrið eins líkt upphaflega perlumunstrinu á þjóðbúningnum eins og hægt var.
Peysan er síð og örlítið tekin inn í mittið.
Stærðir
XS (S) M (L) XL (XXL)
Yfirvídd ca. 85 (91) 98 (103) 113 (121) cm
Lengd að framan ca. 74 (75) 76 (77) 78 (79) cm
Mitti, ummál ca. 82(84)93(98)106(114) cm
Mjaðmir, ummál ca. 87(91)96(106)116(126) cm
Ermalengd ca. 44 (45) 45 (46) 46 (47) cm
Efni
Saga Wool frá Icewear, 100 % ull (50 g/100 m)
Magn
Litur A: #9001-5130, Mayfly Mélange ca. 8 (9) 9 (10) 10 (11) dokkur
Litur B: #9001-1000, Snow White ca. 2 (2) 2 (2) 2 (2) dokkur
Litur C: #9001-5103, Chinois green ca.1 (1) 1 (1) 1 (1) dokka
Litur D: #9001-5103, Chinois green ca. 1 (1) 1 (1) 1 (1) dokka
Prjónfesta
10 x 10 cm = 18 lykkjur og 22 umferðir í sléttu prjóni á prjóna nr. 5.
Prjónar
Hringprjónar nr 4 og 5, 40 og 60 - 80 cm langir
Sokkaprjónar nr 4 og 5
Nauðsynlegt er að hafa rétta prjónfestu til þess að flíkin nái uppgefinni stærð. Sannreynið prjónfestu og skiptið um stærð prjóna ef þörf er á.
Aðferðir
Ivalu peysan er síð peysa sem prjónuð er slétt í hring, neðan frá og upp. Lykkjur af bol og ermum eru sameinaðar í berustykki, sem prjónað er með tvíbanda prjóni og úrtökum upp að hálsmáli.
Reynt var að gera munstrið eins líkt upphaflega perlumunstrinu á vestur grænlenska þjóðbúningnum “Nuilarmiut” og hægt var. Þess vegna eru nokkrar umferðir í munstri þar sem nokkuð margar lykkjur eru á milli lita og er mikilvægt að passa að böndin verði ekki of löng á röngunni.