Smári er endurgerð af vinsælli peysu sem var til sölu hjá Icewear á árum áður. Peysan er með hefðbundnu íslensku lopapeysu sniði en er prjónuð úr mjúku Saga double ullinni frá Iceweargarni. Prjónauppskriftin er frekar einföld og hentar því fyrir flesta prjónara.
STÆRÐIR XS S M L XL
Yfirvídd 91 cm 97 cm 103 cm 109 cm 114 cm
Sídd á bol að handvegi 42 cm 43 cm 44 cm 45 cm 46 cm
Ermasídd að handvegi 45 cm 46 cm 47 cm 48 cm 49 cm
EFNI
Double Saga Wool frá Icewear, 100% ull
MAGN
Aðallitur A (brúnfjólublár) 500 g 600 g 700 g 700 g 800 g
Munsturlitur H (bleikur) 100 g 100 g 100 g 100 g 200 g
Munsturlitur J (grænn) 100 g 100 g 100 g 100 g 100 g
Munsturlitur K (fölbleikur) 100 g 100 g 100 g 100 g 100 g
Munsturlitur M (ljós) 100 g 100 g 100 g 100 g 200 g
PRJÓNAR
Hringprjónar nr 5½ og 6, 40 og 80 cm
Sokkaprjónar nr 5½ og 6
PRJÓNFESTA
10 x 10 cm = 14 lykkjur og 18 umferðir með sléttprjóni, á prjóna nr 6.
AÐFERÐ
Peysan er prjónuð í hring með sléttprjóni. Lykkjur af ermum og bol sameinaðar í axlastykki.