Jólagleði einföld - fullorðins peysa
Jólagleði jólakrútt - barna peysa
Hönnun: Íris Hlín Vöggsdóttir
Jólagleði og Jólakrútt eru einfaldari útgáfur af jólapeysunni Jólagleði. Peysurnar eru prjónaðar ofan frá og niður. Ástæðan fyrir því er sú að þá er auðveldara að máta flíkina til, þannig að hún passi sem best.
Allar peysurnar byrja á jólatrjám, en svo getur hver og einn valið sér sitt næsta munstur, úr þeim munstrum sem fylgja uppskriftinni.
Stærðir
Fullorðins : XS (S) M (L) XL (2XL) 3XL
Barna: 1 (2) 4 (6) 8 (10) 12 ára
Yfirvídd/brjóstmál (fullorðins) ca: 88 (92) 100 (104) 109 (115) 121 cm
Yfirvídd/brjóstmál (barna) ca: 55 (61) 64 (70) 74 (78) 83 cm
Efni
Nordic Mini frá Icewear, 100 % merino ull og
Mohair Silk, 65 % Mohair og 35 % silki, prjónað saman.
Prjónar
Hringprjónn og sokkaprjónar nr 3 og 3.5.
Prjónfesta
10 cm = 23 lykkjur á prjóna nr 3.5.
Erfiðleikastig ++
Hentar meðalvönum prjónurum