Inuk peysan er virkilega falleg peysa með tvílitu bersustykki og tvílitu munstri neðan á ermum.
Innblástur munstursins kemur frá hefðbundnu inúíta húðflúri sem kallast Tunniit.
Stærðir
XS (S) M (L) XL (2XL) 3XL
Lengd að framan, mælt frá upphafi munsturs fyrir neðan kraga ca. 50 (52) 54 (56) 58 (60) 62 cm
Yfirvídd ca. 84 (87) 94 (100) 104 (109) 112 cm
Ermalengd ca. 44 (45) 46 (46) 47 (47) 47 cm
Efni
Bamboo Wool frá Icewear, 50% merino ull og 50% bambus (50g/ 100 m)
Mohair Mix frá Icewear, 38% mohair, 22% ull, 27% acryl, 13%nylon (25g/ 161 m)
Magn
Bamboo Wool
Litur A: #9011 - 1051, Iron Grey ca. 6 (7) 8 (8) 9 (9) 10 dokkur
Litur B: #9011-1000, Snow White ca. 2 (2) 2 (2) 2 (2) 2 dokkur
Mohair Mix
Litur A: #9013 - 1051, Iron Grey ca. 4 (5) 6 (6) 6 (6) 7 dokkur
Litur B: #9013 - 1000 Snow White ca. 1 (1) 2 (2) 2 (2) 2 dokkur
Prjónfesta
10 x 10 cm = 16 lykkjur og 22 umferðir í sléttu prjóni á prjóna nr. 5.5.
Nauðsynlegt er að hafa rétta prjónfestu til þess að flíkin nái uppgefinni stærð. Sannreynið prjónfestu og skiptið um stærð prjóna ef þörf er á.
Prjónar
Hringprjónar nr 4.5, 5.5 og 6, 40 og 60 - 80 cm langir
Sokkaprjónar nr 4.5 og 6
Aðferðir
Inuk peysan er prjónuð í hring, ofan frá og niður með munsturbekk á berustykki og neðan á ermum. Þegar búið er að prjóna berustykki er því skipt upp í bol og ermar. Bolur og ermar eru prjónaðar í hring ofan frá og niður.