X X

Þorgerður garn og uppskrift

SKU
Þorgerður knitting kit
Uppskrift fyrir:
Vana

Þorgerður er endurgerð af peysu sem var vinsæl hjá Icewear á níunda áratugnum, munstrið er óbreytt frá því upphaflega, en passar fullkomlega inn í peysutískuna í dag.  

Uppskriftin er í meðallagi krefjandi og hentar því fyrir vana prjónara.  

 

STÆRÐIR S M L XL XXL 

Yfirvídd 91 cm 99 cm 107 cm 114 cm 122 cm 

Sídd á bol að öxl 43 cm 44 cm 45 cm 46 cm 47 cm 

Ermasídd að handvegi 46 cm 47 cm 48 cm 49 cm 49 cm 

 

EFNI  

Bamboo Wool frá Icewear, 50% merinóull, 50% bambusull. Einnig má nota Nordic frá Icewear, 100% merinóull og Super frá Icewear, 100% ull. 

Magn: 500 g 550 g 600 g 650 g 700 g 

 

PRJÓNFESTA 

10 x 10 cm = 21 lykkja og 33 umferðir með munsturprjóni, á prjóna nr 4.  

 

AÐFERÐIR 

Peysan er öll munsturprjónuð með sléttum og brugðnum lykkjum. Bolur og ermar upp að handvegi, eru prjónaðar í hring. Axlarhluti og upphækkun á ermum er prjónuð fram og til baka. 

Skoða alla lýsingu Skoða stutta lýsingu

Velja stærð

Smelltu á mynd til að hanna eigin litasamsetningu

Velja lit
Out of Stock
Out of Stock
Smella á “breyta” til að skipta um lit á garni
-
+

Verð

Breyta
Þorgerður uppskrift   + 700 kr

9.600 kr

Viðskiptavinir sem keyptu Þorgerður garn og uppskrift keyptu einnig