X X

Tindur garn og uppskrift

SKU
Tindur knitting kit
Uppskrift fyrir:
Vana

Tindur er glaðleg símynstruð peysa fyrir börn allt frá þriggja ára til tíu ára aldurs. Garnið er mjúkt og stingur engan og ótal litasamsetningar í boði.  

 

STÆRÐIR 3-4 ára 5-6 ára 7-8 ára 9-10 ára 

Yfirvídd 80 cm 84 cm 88 cm 95 cm 

Bolsídd að handvegi 44 cm 48 cm 56 cm 62 cm 

Bolsídd upp á öxl 27 cm 30 cm 36 cm 41 cm 

Ermasídd 27 cm 30 cm 36 cm 41 cm 

 

GARN  

Super frá Icewear, 100% vélþvæg ull  

Einnig er hægt að nota Nordic frá Icewear, 100% merinóull eða Bamboo Wool frá Icewear, 50% merinóull og 50% bambusull  

Litur A -aðallitur (bleikur):150-200-200-250 g  

Litur D (brúnn):100-100-150-150 g  

Litur F (föl bleikur):100-100-150-150 g  

 

PRJÓNAR  

Hringprjónar nr 3½ og 4  

Sokkaprjónar nr 3½ og 4  

PRJÓNFESTA  

10 x 10 cm = 21 lykkjur og 24 umferðir með tvíbandaprjóni á prjóna nr 4.  

Nauðsynlegt er að hafa rétta prjónfestu til þess að flíkin nái uppgefinni stærð. Sannreynið prjónfestu og skiptið um stærð prjóna ef þörf er á.  

 

AÐFERÐIR  

Peysan er prjónuð ofan frá og niður með tvíbandaprjóni, í hring.  

Kragi og stroff neðan á bol og ermum eru prjónuð með brugðningum; 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið, til skiptis.  

Á axlastykki eru laskaútaukningar.  

Athugið að auðvelt er að stytta og lengja bol og ermar þegar peysa er prjónuð frá hálsmáli og niður.  

Skoða alla lýsingu Skoða stutta lýsingu

Velja stærð

Smelltu á mynd til að hanna eigin litasamsetningu

Velja lit
Out of Stock
Out of Stock
Out of Stock
Out of Stock
Smella á “breyta” til að skipta um lit á garni
-
+

Verð

Breyta
-
+

Verð

Breyta
-
+

Verð

Breyta
Tindur uppskrift   + 700 kr

4.260 kr

Viðskiptavinir sem keyptu Tindur garn og uppskrift keyptu einnig