Fallegt ungbarnasett með kaðlaprjóni. Peysa, húfa og hosur, prjónaðar úr mjúka Babywool garninu frá Icewear.
Uppskriftin birtist áður í prjónablaðinu Lopa og bandi. Hönnun: Margrét Linda Gunnlaugsdóttir.
STÆRÐIR 3-6 mán 6-12 mán 15-18 mán 24 mán
Yfirvídd 59 cm 63 cm 68 cm 72 cm
Sídd 28 cm 30 cm 32 cm 34 cm
Ermalengd 18 cm 20 cm 22 cm 24 cm
EFNI
A: Baby Wool frá Icewear, 100% merinóull
B: Mohair Silk frá Icewear, 57% mohair, 13% ull, 30% silki
Magn:
A: 150 g 150 g 200 g 200 g
B: 25 g 25 g 50 g 50 g
Tala: 2 stk
PRJÓNAR
Hringprjónar nr 3½ og 4, 50 cm
sokkaprjónar nr 3½ og 4
kaðlaprjónn
PRJÓNFESTA
10 x 10 cm = 23 L og 32 umferðir sléttprjón með A+B á prjóna nr 4.
10 cm = 30 L kaðlamunstur með A á prjóna nr 4.
AÐFERÐIR
Bolur upp að handvegum og ermar eru prjónaðar í hring með sléttprjóni.
Berustykki er prjónað fram og til baka með kaðlamunstri.
ERFIÐLEIKASTIG ++
Uppskriftin hentar meðalvönum prjónurum.